Smellin vísa um síđustu atburđi

Grin

Hárfínt sagan hefur breyst

hún er oss í fersku minni,

en Davíđ kanske gekk full geyst

frá Golíat ađ ţessu sinni.

Ţessa vísu fékk ég senda í tölvupósti í morgun - höfundur vill ekki láta nafn síns getiđ,  en hún mun vera ćttuđ frá Egilsstöđum. Sel ţađ ekki dýrara en ég keypti.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glitnir fékk á gúlann högg

gífurlegt var böliđ.

Daglangt setiđ, drukkin lögg,

og Davíđ keypti öliđ.

gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráđ) 3.10.2008 kl. 10:55

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ţessi er góđ 

Marta B Helgadóttir, 3.10.2008 kl. 10:56

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frábćrt korn, líka hjá Gísla.

Kveđja úr snjónum á Teigunum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2008 kl. 11:37

4 identicon

Opnađist ginnungagap
gjalddaginn bođađi tap
byggđur á sandi
er braskaravandi
og bankinn sem Davíđ drap.

Már Högnason (IP-tala skráđ) 3.10.2008 kl. 11:54

5 Smámynd: Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir

Og hér er ein betrumbćtt frá í gćr (var ort ţá í ađeins of miklum fljótheitum):

Ýmsir bölva efalaust
árferđinu.
"Nú er komiđ hrímkalt haust"
í hagkefinu.

Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 3.10.2008 kl. 13:27

6 Smámynd: Ţorsteinn Briem

Já, svađalegt var ţar sving,
en sjaldan átti hann pening,
sá bankapakki,
byggđur á krakki,
but Bubbi is king of banking.

Ţorsteinn Briem, 3.10.2008 kl. 13:30

7 identicon

Fyrst söfnun er hafin á svona kveđskap....

Búiđ sukk og komiđ kvöld
kaldir vindar nćđa
eftir sitja syndagjöld
en sumir fá ađ grćđa. 

Már Högnason (IP-tala skráđ) 3.10.2008 kl. 13:33

8 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ferlega eruđ ţiđ góđ!!!!!!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 3.10.2008 kl. 13:48

9 Smámynd: Ţorsteinn Briem

Fer allt núna fjandans til,
í fjárhagnum heimilanna,
og ekki lengur um ţađ bil,
er nú Davíđ međal manna.

Ţorsteinn Briem, 3.10.2008 kl. 13:59

10 Smámynd: Theódór Norđkvist

Ég vil taka inn í ţetta (meintan) yfirvofandi olíuskort:

Á hliđina leggst nú einn banki,ţó billjónum ađ sér hann sanki.Á međan ein ţjóđ,alveg neysluóđ,

ekur á tómum tanki.

Theódór Norđkvist, 3.10.2008 kl. 14:11

11 Smámynd: Theódór Norđkvist

Ć ţetta kom í belg og biđu, reyni aftur:

  • Á hliđina leggst nú einn banki,
  • ţó billjónum ađ sér hann sanki.
  • Á međan ein ţjóđ,alveg neysluóđ,
  • ekur á tómum tanki.

Theódór Norđkvist, 3.10.2008 kl. 14:14

12 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Ég er ekki eins sleipur í ljóđforminu og ţiđ hín hérna, svo ég kýs ađ bregđa fyrir mig hálfgerđri atómvísu:

    Sósíalisminn er látinn,

        kommúnistarnir drápu 'ann.

    Kapítalisminn er dauđur,

        grćđgisvćđingin át 'ann.

Góđar stundir.

Guđmundur Ásgeirsson, 3.10.2008 kl. 14:40

13 Smámynd: Sigurđur Sigurđsson

Var ţetta ekki svona:

Davíđ greiddi Golíat
geysi högg međ steini.
Fyrir honum fullur sat
fantur sá í leyni.

Held ađ Helgi Sćm hafi átt seinnipartinn

Sigurđur Sigurđsson, 3.10.2008 kl. 14:42

14 Smámynd: Sigurđur Sigurđsson

Skv. beiđni hér ađ ofan um ađ botna:


Allt fer núna fjandans til
í fjárhag heimilanna.

Fékk ég fjögur ţursabit
í fjöregg minninganna.

Sigurđur Sigurđsson, 3.10.2008 kl. 14:47

15 Smámynd: Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir

Ţessa fékk ég frá Pétri Stefánssyni:

Klćrnar brýnir kreppan skćđa.
Kann ei neinn ađ stöđva ţađ.
"Almáttugur, en sú mćđa"
eins og skáldiđ forđum kvađ.

Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 3.10.2008 kl. 15:23

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband