Velkominn heim Paul Ramses

Ánægjulegt var að sjá fjölskyldu Paul Ramses sameinaða á ný eftir erfiðan aðskilnað frá nýfæddu barni og eiginkonu sem var nýrisin af sæng eftir barnsburð þegar fjölskyldufaðirinn var leiddur á brott af lögreglu. Enda leynir sér ekki á þessum myndum hin heita gleði yfir endurfundum við konu og barn.

Vonandi er þetta upphafið að farsæld fjölskyldunnar í nýju landi. Þökk sé þeim sem tóku í taumana og beindu málsmeðferðinni af óheillabraut.


mbl.is Grátið af gleði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Já það var frábært að sjá þessa tilfinningaþrungnu endurfundi ...mér er sama þó fólk kalli mig bæði vitlausa og bláeygða, ég vil að hann og þau fái að vera hér.

Ragnheiður , 26.8.2008 kl. 17:39

2 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Það var ljótur gjörningur að tvístra fjölskyldunni.

Ánægjulegt að þau sé komin saman á ný.

Jens Sigurjónsson, 26.8.2008 kl. 18:33

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2008 kl. 18:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband