Silfur-skál!

Allt fór hér í brand og bál
Börðumst við af lífi og sál.
Boltar skullu á Björgvin Pál
í Beijing. Það var silfur - skál!

Íslenskur fáni yfir verðlaunapalli á Ólympíuleikunum - silfur um háls íslenska handboltalandsliðsins - tvímælalaust stoltasta stund okkar Íslendinga! Strákarnir okkar mega vera glaðir af frammistöðu sinni, við erum svo sannarlega glöð hér heima.

Úrslitin í lokaleiknum voru vel viðunandi - sami markamunur og var á okkur og Spánverjum. Röðun þjóða á verðlaunapallinum var því vel makleg miðað við frammistöðuna í þessum leikjum. Frakkarnir eru augljóslega með gríðarlega sterkt lið, og þeir unnu sannarlega fyrir gullinu. Engin skömm að tapa fyrir slíku liði.

Annars mátti sjá ákveðna veikleika í leik íslenska liðsins gegn Spánverjum - þá á ég við hraðasóknirnar sem ekki gengu upp. Ég óttaðist strax að þetta myndi verða okkur dýrkeypt í úrslitaleik gegn sterkara liði, og það kom á daginn. Engu að síður sýndu strákarnir mikinn baráttuvilja og gáfust ekki upp, jafnvel þó markastaðan væri orðin afar óhagstæð um miðbik leiksins.

Til hamingju Ísland: Silfur-skál!

Beijing08


mbl.is Íslendingar taka við silfrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær vísa Ólína. Já það var gaman að sjá þá á verðlaunapalli piltana og þeir áttu það svo sannarlega skilið. Sannkallaður hátíðisdagur.

Helga Kristín (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 16:37

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Alltaf stutt í kveðskapinn hjá þér, missti reyndar eina eftir mig á mína síðu áðan.  Kær kveðja vestur Hearts  Hearts

Ásdís Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband