"Sneri niður" lögregluþjón?

Nei kallinn minn, þú nefbraust óviðbúinn lögregluþjón!

Sjálfsréttlæting er ekki það sama og afsökunarbeiðni. 

Ætli maður að fá fyrirgefningu er nú það minnsta að gangast við því sem maður hefur gert.

 

 


mbl.is Missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ólína...

 Með fullri virðingu... þá las ég  nú líka yfirlýsingu hans og hann marg baðst afsökunar á framferði sínu. Reyndar reyndi hann að afsaka árásina en margoft baðst hann fyrirgefningar samt sem áður. Mér er sama hvað fólki finnst um þennan mann en það ber að virða fólk fyrir að biðjast velvirðingar og ef það irðast gjörða sinna. 

Brynjar Jóhannsson, 27.4.2008 kl. 21:19

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er lítil sem engin iðrun hjá manni sem afskræmir staðreyndir máls sé í hag.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.4.2008 kl. 21:20

3 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Samanber Árna Johnsen.

Gísli Sigurðsson, 27.4.2008 kl. 21:41

4 Smámynd: Yngvi Högnason

Var þetta ekki bara Sturlaður maður með sjálfvirkan sleppibúnað?

Yngvi Högnason, 27.4.2008 kl. 22:09

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Frekar vafasöm afsökunarbeiðni, meira réttlæting. En annað, hefur einhersstaðar komið fram að lögreluþjónninn sé nefbrotinn? Heyrði í fréttum á sínum tíma að hann væri hugsanlega nefbrotinn en hvergi séð það staðfest.

Víðir Benediktsson, 27.4.2008 kl. 23:09

6 Smámynd: Sævar Einarsson

Því ekki að taka einn Lúkas á Ágúst meðan enginn veit neitt um þennan lögreglumann, enginn veit hvort hann sé nefbrotinn, hryggbrotin, höfuðkúpubrotinn etc svo endilega rakkið niður Ágúst áður en það kemur í ljós hvað skeði fyrir lögreglumanninn FLJÓT ! ... til að forðast allan misskilning þá er þetta kaldhæðni.

Sævar Einarsson, 28.4.2008 kl. 00:19

7 Smámynd: Bjartmar Oddur Þ Alexandersson

Ég held að það skipti engu máli hvað amar að lögreglumanninum, þetta er bara mjög einfalt, maður ræðst ekki á lögregluþjón.

Bjartmar Oddur Þ Alexandersson, 28.4.2008 kl. 00:28

8 Smámynd: Sævar Einarsson

Það er gott að vita til þess að það sé til fólk sem misstígur sig aldrei í lífinu.

Sævar Einarsson, 28.4.2008 kl. 00:38

9 Smámynd: Tiger

  Mér fannst ekkert koma út úr þessu bréfi karlsins annað en sjálfsvorkun og tilraun til að draga okkur, borgarana, með sér í meðaumkunaröldu. Léleg tilraun manns sem veit uppá sig sökina en reynir samt að klóra í bakkann. Það er sannarlega hægt að misstíga sig í lífinu - en maður axlar þá ábyrgð á því eins og maður, en klórar ekki enn dýpri holu sjálfum sér til handa með svona væli segi ég...

Tiger, 28.4.2008 kl. 03:02

10 identicon

Ofbeldi á alldrey rétt á sér, afsökunin var neydd aðsjálfsjögðu. Ég er samt enn að velta fyrir mér hversvegna löggan keyrði bara ekki lögreglumanninn sjálf á slysó..

Því miður eru nefbrot algeng í bænum sem og verri slagsmál. Ég veit vel dæmi sem löggan heur skutlað slagsmálakempum bæjarinns sjálf á slysó fyrir min meira. Eru þeir bara ekki að ná í meiri samúð almennings með að dramatisera þetta svona með sjúkrabílnum?  Fannst þetta ekkert svakalegt að sjá í sjónvarpinu. En enn og aftur. Ég styð ALLDREY ofbeldi, bara hissa á heilum sjúkrabíl undir nefbrot. Maður hefur nú tekið taxa með verri hluti en það.

kristján (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 05:04

11 identicon

Það er skrítið með þetta hnefahögg og nefbrot.  Þetta sést ekki á neinni mynd eða myndbandi af atburðinum.  Á myndbandi sést ÁF grípa vinstri handlegg utan um háls lögreglumanns og snúa hann niður.  Aðrir lögreglumenn komu strax til aðstoðar félaga sínum.  Ekki sást neitt hnefahögg. 

Hvernig nefbrotnar maður þegar hann er tekinn hálstaki og snúinn niður?  Hvað er verið að meina þegar menn eru sagðir hafa nefbrotnað?  Nefið er brjósk en ekki bein.  Það brotnar því ekki heldur aflagast.  Svo má velta því fyrir sér, ef nef lögreglumannsins hefur skaddast, hvort það gerðist þegar ÁF sneri hann niður eða þegar 3-4 aðrir lögreglumenn hnoðuðust ofan á þeim tveimur.

Hafandi sagt þetta þá er framkoma ÁF algjörlega óásættanleg eins og allra þeirra sem ráðast á lögreglumenn við störf.  Það er eðlilegt að menn veiti mótspyrnu, þegar verið er að handtaka þá, eða að minnsta kosti skiljanlegt.  En árásir eiga ekki rétt á sér.

Hitt er annað mál að lögreglan hefur í þessu máli gengið allt of langt í beitingu ofbeldis og annarra þvingunaraðgerða.  Aðgerðir hennar voru langt umfram meðalhóf og minna á "þvagleggsaðgerðirnar" frægu.   Allt er talið réttlætanlegt ef menn eru ekki lögreglunni þóknanlegir.   Er lögreglan ekki of upptekin af því að berja á venjulegu fólki?  Þyrfti hún ekki frekar að taka til hendinni við ofbeldismenn og handrukkara?  Ég bara spyr eins og kjáni.  Eða er auðveldara að berja vörubílsstjóra og menntaskólakrakka.

kristján níundi (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband