Norðan fjúkið næðir kalt

hestarihöm 

Svolítil hringhenda í tilefni af illviðri og jarðbönnum:

 

Norðan fjúkið næðir kalt

naprir rjúka vindar.

Fanna dúkur felur allt.

Freðnir hjúpast tindar.

 

Hjallabungur, freðið frón

fetar hungur vofan.

Kári þungan kveður tón,

kallar drungann ofan.

 

 

brrrrrrr.................


mbl.is Slæmt veður víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, brrrr en notalegt   Snow  Snow Snow 

Ásdís Sigurðardóttir, 31.1.2008 kl. 23:38

2 Smámynd: Jens Guð

  Flott og kröftug hringhenda sem á vel við á Þorra.

Jens Guð, 31.1.2008 kl. 23:49

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Flott kveðið! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 31.1.2008 kl. 23:51

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Uuuuummmmm

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.2.2008 kl. 04:41

5 identicon

Heyrðu, félagi Ólína, ertu búinn að gefa okkur Leirverja upp á bátinn?

Ellismellur (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 10:02

6 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Hressilegt, íslenskt og við hæfi í garranum undanfarið 

Svanur Sigurbjörnsson, 1.2.2008 kl. 14:14

7 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Flott kveðið...eftir þig sjálfa vænti ég víst?

Rúna Guðfinnsdóttir, 4.2.2008 kl. 00:04

8 Smámynd: Gunnar Kr.

Glæsilegt!

Gunnar Kr., 4.2.2008 kl. 01:22

9 Smámynd: Dofri Hermannsson

Hagleiksskáld ertu!

Dofri Hermannsson, 6.2.2008 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband